flugfréttir
Fyrsta innanlandsflug Norwegian í Argentínu
- Fyrsta flug Norwegian Air Argentina var frá Buenos Aires til Cordoba
Flugmennirnir, Ole Christian Melhus og Martin Bessone, flugu fyrsta áætlunarflug Norwegian Air Argentina til Cordoba
Norwegian flaug í gær sitt fyrsta innanlandsflug í Argentínu með nýstofnaða dótturfélaginu, Norwegian Air Argentína.
Fyrsta innanlandsflugið var flug frá Jorge Newbery flugvellinum í Buenos Aires til borgarinnar Cordoba með þotu
af gerðinni Boeing 737-800.
Flugvélin flaug síðar um daginn tvö innanlandsflug til viðbótar til Cordoba og eitt flug til Mendoza en flugtíminn frá Buenos
Aires til Cordaoba er 1:25 klukkustund en flugið til Mendoza er 1 klukkustund og 40 mínútur.
„Frá og með deginum í dag eiga mun fleira fólk gefast þess kostur á að fljúga um Argentínu“, sagði Guillermo Dietrich,
samgönguráðherra Argentínu, í ræðu sinni að tilefni fyrsta innanlandsflugs Norwegian Air Argentina í landinu.
Norwegian Air Argentina flaug fjögur áætlunarflug í gær milli Buenos Aires, Cordoba og Mendoza
Norwegian stofnaðir Norwegian Air Argentina í febrúar í fyrra og hefur tekið um eitt og hálft ár að koma rekstrinum af stað, panta
vélar og fá öll tilskilin leyfi frá flugmálayfirvöldum í Argentínu fyrir félagið en þetta er í fyrsta sinn sem evrópskt flugfélag
hefur áætlunarflug í Argentínu.
Norwegian mun á næstunni hefja flug til fleiri áfangastaða í Argentínu en meðal borga sem stendur til að fljúga til eru
Iguzu, Neuquen, Bariloche og Salta.
Norwegian byrjaði í febrúar á þessu ári að fljúga langflug til Buenos Aires frá London Gatwick með Dreamliner-þotum
af gerðinni Boeing 787.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.