flugfréttir
Hundruðir nemenda prófuðu flughermi hjá British Airways
- Hvetja ungt fólk til þess að leggja fyrir sig „besta starf heims“
Nemendur fengu meðal annars að spreyta sig í flughermi í höfuðstöðvum British Airways
Á annað hundrað breskra háskólanema fengu að spreyta sig í flughermi í höfuðstöðvum British Airways á dögunum er flugfélagið breska hélt viðburðinn Flying Futures sem miðar að því að hvetja ungt fólk til þess að leggja flugið fyrir sig.
Flugmenn hjá British Airways ræddu við nemendur um þjálfun flugmanna og gáfu þeim innsýn inn í starf
og hlutverk flugmannsins.
„Allir hjá British Airways eru áhugasamir um að fá fleiri yfir í flugið og vilja flestir miðla af þekkingu sinni
og reynslu til ungs fólks enda er flugið fyrir alla sem hafa áhuga“, segir Al Bridger, flugstjóri hjá
British Airways.
„Mig hefur alltaf langað til þess að verða flugmaður en ég vissi aldrei almennilega hvar maður byrjar þar
sem ég þekki engann sem hefur flogið flugvél“, segir Simrath Virk, nemandi við Uxbridge-háskólann.
The Flying Futures verkefni British Airways er hluti af átaki flugfélagsins til að hvetja ungt fólk til þess að stefna á leggja fyrir sig „besta starf heims“
The Flying Futures verkefni British Airways er hluti af átaki flugfélagsins til að hvetja ungt fólk til þess
að stefna á leggja fyrir sig „besta starf heims“ en félagið heimsækir einnig skóla, háskóla og atvinnuskrifstofur.
Þá hefur British Airways einnig hvatt konur til að leggja flugið fyrir sig en í dag eru um 6% flugmanna félagsins
konur sem er tvöfalt hærra hlutfall samanborið við önnur bresk flugfélög.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.