flugfréttir
Flugstjóri neitaði að fljúga vegna vandamáls á First Class
- Krafðist þess að tveir flugmenn á frívakt myndu fá sæti á fyrsta farrými
Boeing 777-300ER þota Thai Airways
Þónokkur töf varð á flugi Thai Airways í síðustu viku frá Zurich til Bangkok eftir að flugstjóri neitaði að fljúga flugið þar sem að tveir samstarfsmenn hans, sem einnig eru flugmenn hjá félaginu, fengu ekki sæti á First Class farrými.
Thai Airways notar oft laus sæti á First Class fyrir flugmenn og áhafnir sem eru að ferðast til og frá heimavelli félagsins í Bangkok en flugstjórinn vildi að tveir samstarfsmenn hans fengu að vera á fyrsta farrými þrátt fyrir að ekkert sæti var laust.
Fluginu seinkaði um tvær og hálfa klukkustund og fór flugvélin í loftið skömmu eftir að tveir farþegar á First Class voru tilbúnir að færa sig aftur í Business Class
en þeir farþegar höfðu verið uppfærðir á First Class er þeir komu um borð og áttu hvort eð er bókað á Business Class farrými.
Málið upphófst með því á því að til stóð að fljúga frá Zurich til Bangkok með Boeing 777-300ER þotu en vegna vandamáls sem kom upp þurfti að senda Boeing 747 þotu til Zurich til að fljúga farþegum til Bangkok.
Með henni fylgdu flugmenn sem hafa réttindi á júmbó-þotuna og voru flugmennirnir, sem áttu að fljúga Boeing 777-300ER þotunni, látnir sitja meðal farþega á First Class.
Sætafjöldi í Boeing 777-300ER og Boeing 747 er þó ekki sá sami og upphófst þá vandamál með hvar væri hægt að láta flugmennina sitja sem áttu að fljúga Boeing 777 þotunni.
First Class farrými í Boeing 747-400ER þotu Thai Airways
Thai Airways bað alla farþegana afsökunar á Twitter vegna málsins auk þess sem farþegarnir tveir, sem þurftu að færa sig, fengu
sérstaka afsökunarbeiðni.
„Við erum að skoða þetta mál. Eina sem við vitum er að öll sætin á First Class voru upptekin og flugmennirnir, sem voru ekki
að fljúga, hefði átt að geta setið á Business Class þar sem þar voru laus sæti. En flugmennirnir, sem voru að fljúga, og starfsmenn
á flugvellinum, hefðu átt að leysa þetta með meiri fagmennsku í stað þess að halda farþegum í gíslingu“, segir starfsmaður innan Thai Airways í viðtali
vegna málsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.