flugfréttir

Þurftu að snúa við þar sem flugvélin var „of stór“

23. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 11:35

Embraer 145 þota United Express (Skywest Airlines)

Farþegaþota í innanlandsflugi í Bandaríkjunum þurfti að snúa við þar sem flugvélin reyndist vera of stór til þess að lenda á ákvörðunarstað.

Flug United Express átti að fara í loftið samkvæmt áætlun frá Chicago til Chattanooga í Tennessee þann 16. október sl. en skömmu fyrir brottför þurfti að skipta um flugvél og voru farþegar látnir færa sig yfir í flugvél af annarri tegund.

Til stóð að fljúga flugið með Bombardier CRJ þotu en vélinni var skipt út fyrir Embraer 175 þotu og fór vélin í loftið áleiðis til Chattanooga.

Þegar þotan var búin að vera í um eina klukkustund í loftinu, og var hálfnuð til Tennessee, tilkynnti flugstjórinn farþegum að vélin væri „of stór“ fyrir flugvöllinn í Chattanooga og þyrftu þau því að snúa við til O´Hare-flugvallarins.

Farþegar fengu skilaboð í síma frá United Airlines þar sem stóð: „Við biðjumst afsökunar á því að flugvélin þurfti að snúa við en flugvöllurinn í Chattanooga getur ekki afgreitt þessa tegund af flugvél eins og er og hafa allir verið skráðir í annað flug með annarri flugvél“.

Þegar vélin lenti í Chicago voru farþegar látnir fara um borð í Bombardier CRJ200 þotu sem félagið notar vanalega til flugsins frá Chicago til Chattanooga.

Skywest Airlines, sem annaðist flugið fyrir United Express, segir að vandamálið hafi ekki verið með að lenda flugvélinni í Chattanooga heldur þá var flugvallarstarfsfólkið ekki meðvitað um að til stóð að senda Embraer 175 þotu í þetta skiptið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga