flugfréttir

Styttist í jómfrúarflug Airbus A330-800neo

23. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:00

Airbus segir að það styttist í að A330-800 fari í jómfrúarflugið

Það styttist í jómfrúarflug Airbus A330-800neo en Airbus segir að fyrsta flugið muni eiga sér stað í næstunni.

Búið er að koma fyrir hreyflum undir vængina á fyrstu tilraunarþotunni sem eru af gerðinni Trent 7000 frá Rolls-Royce.

Airbus A330-800 er minni útgáfan af Airbus A330neo en stærri útgáfan, A330-900, bíður nú þess að vera afhent til fyrsta flugfélagsins sem er TAP Air Portugal um leið og vottun verður gefin út frá evrópskum flugmálayfirvöldum.

Samt eru átta mánuðir liðnir frá því að fyrsta Airbus A330-800neo þotan var máluð í litum Airbus í febrúar á þessu ári.

Fyrsta Airbus A330-800 tilraunarþotan er komin með Trent 7000 hreyfla undir vængina sína

Fyrsta Airbus A330-800 tilraunarþotan ber skráninguna F-WTTO og hefur Airbus ekki enn gefið út hvenær jómfrúarflugið er áætlað.

Ekki hefur gengið vel að selja A330-800 þotuna og var á tímabili ekkert flugfélag sem hafði pantað þotuna en Uganda Airlines lagði inn pöntun í þotuna í júlí á þessu ári og í þessum mánuði barst svo pöntun í vélina frá Kuwait Airways en þess má geta að Airbus hefur fengið pantanir í 224 eintök af A330-900.

Hawaiian Airlines og TransAsia Airways höfðu áður pantað Airbus A330-800 en bæði félögin hættu við pantanirnar á sínum tíma.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga