flugfréttir
67 flugmönnum og áhöfnum sagt upp hjá LOT vegna verkfalls
- Mikil harka á sjöunda degi verkfalls - Hafa leigt þotur með áhöfnum
Flugstjóri hjá LOT Polish Airlines ræðir við pólska fjölmiðla
Harka hefur færst í verkfallsaðgerðir hjá pólska flugfélaginu LOT Polish Airlines sem greip til þess ráðs sl. mánudag að segja upp um 67 flugmönnum og flugfreyjum sem höfðu ekki mætt til vinnu vegna verkfallsaðgerðanna en félagið segir að aðgerðirnar séu ólöglegar.
Verkfallsaðgerðirnar hafa nú staðið yfir í eina viku meðal áhafna LOT Polish Airlines og hefur
félagið þurft að fella niður fjölda flugferða og þar á meðal tugi flugferða til annara landa frá Varsjá til
áfangastaða í Þýskalandi, Danmerkur og fleiri Evrópulöndum og einnig til Toronto.
Stéttarfélög áhafna félagsins krefjast hærri launa, betra starfsumhverfis auk þess sem farið er fram
á að nokkrir stjórnarmeðlimir segi af sér og fyrrverandi meðlimir verði teknir aftur inn í stjórn félagsins.
Verkfallsaðgerðirnar hófust sl. fimmtudag fyrir framan höfuðstöðvar LOT Polish Airlines í Varsjá og sér ekki fyrir endinn á þeim
Forstjóri LOT Polish Airlines segir að félagið sé reiðubúið til að setjast að samningaborðinu en aðeins
með áhöfnum en ekki með verkalýðsfélögunum þar sem þeir hafa nú þegar valdið félaginu
miklu fjárhagstjóni.
Vegna verkfallsaðgerðanna, sem hafa staðið yfir í sjö daga, þá hefur félagið tekið á leigu a.m.k.
sex þotur með áhöfnum til þess að halda leiðarkerfinu gangandi sem hefur kostað félagið
um 633 milljónir króna.
Um 700 flugmenn og 1.300 flugfreyjur og flugþjónar starfa hjá LOT Polish Airlines sem er í eigu
pólska ríkisins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.