flugfréttir
Boeing opnar verksmiðju í Evrópu í fyrsta sinn
- Íhlutir fyrir Boeing 737 MAX og 767 framleiddir í Sheffield
Verksmiðja Boeing í Sheffield er um 62 þúsund fermetrar að stærð
Boeing hefur opnað fyrstu verksmiðjuna í Evrópu sem framleiðir íhluti í nýjar Boeing 737 MAX þotur auk eininga í Boeing 767.
Nýja íhlutaverksmiðan er staðsett í Sheffield á Englandi og framleiðir verksmiðjan búnað í kerfi sem hreyfir stjórnfleti
flugvélanna sem framleiddur verður úr hráefni frá Bretlandi.
Um þúsundir eininga verða framleidd í verksmiðjunni í hverjum mánuði áður en þeir verða sendir til Portland í Oregon
og mun verksmiðjan smíða yfir 100 mismunandi tegundir af pörtum fyrir Boeing 737 MAX og Boeing 767.
Boeing hefur fjárfest fyrir um 6 milljarða króna í nýju verksmiðjunni í Sheffield sem er 62.000 fermetrar að stærð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.