flugfréttir
Stefna á jómfrúarflug A330-800 í næstu viku
Fyrsta Airbus A330-800 tilraunarþotan
Airbus stefnir á að Airbus A330-800, minni útgáfan af nýju Airbus A330neo breiðþotunni, muni fljúga jómfrúarflugið í næstu viku.
Airbus segir að stefnt sé á að þotan fljúgi sitt fyrsta flug fyrstu daganna eftir 5. nóvember og hefur framleiðandinn
tekið frá „glugga“ til þess að fljúga jómfrúarflug þotunnar þá.
Nú þegar hafa farið fram tilraunir með fyrstu A330-800 þotuna á jörðu niðri þar sem prófanir hafa verið gerðar
m.a. með uppkeyrslu á hreyflum þotunnar sem eru af gerðinni Trent 7000.
Dagsetningin á jómfrúarfluginu fer þó allt eftir veðurskilyrðum en algengt er að framleiðendur taki frá nokkra daga
og velji loks þann dag sem hentar best fyrir fyrsta flugið.
Eftir jómfrúarflugið hefjast flugprófanir sem munu standa yfir í 300 flugtíma áður en fyrsta eintakið verður afhent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.