flugfréttir
Ásgeir Pálsson nýr formaður Borealis Alliance
Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia (til vinstri) og nýr formaður Borealis Alliance, og Martin Rolfe, forstjóri NATS í Bretlandi og fráfarandi formaður Borealis Alli
Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia, hefur tekið við formennsku í stjórn Borealis Alliance en þetta var tilkynnt á stjórnarfundi samtakanna sem haldinn var í Helsinki í Finnlandi
24. október síðastliðinn.
Borealis Alliance eru samtök níu fyrirtækja í flugleiðsöguþjónustu og er Isavia meðlimur í þeim. Aðrir meðlimir eru flugleiðsögufyrirtæki eftirtalinna landa: Bretland (NATS), Írland (IAA), Finnland (ANS Finland), Noregur (AVINOR), Danmörk (NAVIAIR), Eistland (EANS), Svíþjóð (LFV) og Lettland (LGS).
Ásgeir, sem hefur verið varaformaður, tekur við formennsku í stjórn Borealis Alliance af Martin Rolfe, forstjóra NATS í Bretlandi. Ásgeir gegnir embættinu næstu 18 mánuðina.
Nánari upplýsingar um markmið og starfsemi Borealis Alliance má finna á heimasíðu samtakanna
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.