flugfréttir

Flugprófunum lokið með Tecnam P2012 Traveller

- Eiga von á flughæfnisvottun frá EASA og FAA fyrir lok ársins

31. október 2018

|

Frétt skrifuð kl. 07:23

Tecnam P2012 Traveller flugvélin mun á næstunni fá flughæfnisvottun

Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam hefur lokið flugprófunum með nýju Tecnam P2012 Traveller flugvélinni og er nú beðið eftir að vélin fái flughæfnisvottun frá evrópskum og bandarískum flugmálayfirvöldum.

„Öllum prófunum er nú lokið. Tilraunaflugvélarnar tvær hafa til samans flogið yfir 500 flugtíma og ættum við að fá vottun frá flugmálayfirvöldum á næstu vikum“, segir Walter Da Costa, markaðsstjóri Tecnam.

Verið er að setja saman fimm sölueintök af Tecnam P2012 Traveller flugvélinni í verksmiðjunum í Capua á Ítalíu sem munu fara til Cape Air í Boston í Massachusetts sem er stærsti viðskiptavinurinn sem hefur pantað 100 eintök af flugvélinni.

Tecnam P2012 Traveller er 11 sæta, hávængja, „mini“-farþegaflugvél sem knúin er áfram með tveimur Lycoming TEO-540-C1A skrúfuhreyflum. Vélin kemur með föstum hjólabúnaði sem gerir henni kleift að lenda og taka á loft á ómalbikaðri flugbraut og þá kemur flugvélin með stórum, ílöngum gluggum sem gefa farþegum gott útsýni. 

Tecnam mun afhenda fyrsta eintakið til Cape Air í febrúar 2019

Tecnam mun afhenda fyrsta eintakið til Cape Air í febrúar á næsta ári en framleiðandinn sér fram á að þörf sé fyrir um 11.500 flugvélar af þessari gerð á næstu tíu árum.

Ein Tecnam P2012 Traveller flugvélar kostar 326 milljónir króna samkvæmt listaverði og er stefnt á að framleiða og afhenda 18 flugvélar árið 2019 og 30 eintök árið 2020.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga