flugfréttir
Hagnaður Icelandair Group tæpir 8 milljarðar
- Hækkun á olíuverði, lægri fargjöld og lakari sætanýting orsök verri afkomu
TF-ICE, „Jökulsárlón“, Boeing 737 MAX þota Icelandair
Hagnaður Icelandair Group var 36 prósentum lægri á þriðja ársfjórðungi þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra.
Þetta kemur fram í afkomuskýrslu frá Icelandair Group en EBITDA nam 115 milljónum bandaríkjadala sem samsvarar
13,8 milljörðum króna en hagnaður Icelandair Group á þriðja ársfjórðungi
ársins 2017 nam 7.6 milljörðum.
Hagnaðurinn er því 41 milljónum USD lægri en í fyrra og er það
m.a. rakið til hækkun á olíuverði, lágum meðalfargjöldum og lakari
sætanýtingu.
Fram kemur að heildartekjur hafi numið 545,2 milljónum bandaríkjadala sem jafngildir 65.8 milljörðum króna
sem er hækkun um 2 prósent frá árinu 2017.
Icelandair Group birti í gær afkomu fyrirtækisins eftir þriðja ársfjórðung
Eiginfjárhlutfall var 36% í lok september, nettó vaxtaberandi skuldir námi 222.2 milljónum USD í lok september og handbært fé og
markaðsverðbréf nema 184 milljónum bandaríkjadala.
„Afkoma þriðja ársfjórðungs lækkar milli ára en er í samræmi við afkomuspá sem gefin var út í lok ágúst“, segir í yfirlýsingu frá Boga Nils Bogasonar, starfandi forstjóra Icelandair Group.
Fram kemur að gripið hafi verið til fjölmargra aðgerða til að bæta samkeppnishæfni félagsins og vega upp á móti kostnaðarhækkunum, ekki síst vegna hækkunar á eldsneytisverði.
Í maí 2019 hefst flug í nýjum tengibanka á Íslandi meðfram núverandi tengibanka leiðakerfisins með það að markmiði að skapa félaginu ný tækifæri til vaxtar, bæta þjónustu við farþega og auka sveigjanleika.
Misvægi í sætaframboði milli N-Ameríku og Evrópu hefur verið leiðrétt í flugáætlun næsta árs og þá hefur sölu- og markaðsstarf félagsins verið endurskipulagt og áhersla lögð á að styrkja tekjustýringu félagsins og er innleiðing á nýju tekjustýringarkerfi vel á veg komin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.