flugfréttir

Engar seinkanir lengur á nýju skrokkum fyrir Boeing 737

- Framleiðslan komin aftur á réttan kjöl hjá Spirit AeroSystems

1. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:04

Starfsmaður Spirit AeroSystems í stjórnklefa á skrokki fyrir Boeing 737

Spirit AeroSystems segir að fyrirtækinu hafi tekist að vinna sig úr þeim seinkunum sem hafa verið í gangi með framleiðslu á nýjum skrokkum fyrir Boeing 737 og sé framleiðslan í dag komin á rétt skrið samkvæmt áætlun.

Yfirmenn Spirit AeroSystems segja að nú sé unnið að því að undirbúa framleiðsluna fyrir kröfur Boeing um afköst fyrir næsta ár en því fylgir aukinn kostnaður sem kallar á fleira starfsfólk og fleiri leiðir til þess að senda frá sér nýja skrokka til Seattle.

„Við höfum náð að laga allt í dag og binda endi á seinkun á framleiðslunni hjá okkur“, segir Tom Gentile, framkvæmdarstjóri fyrirtækisins, og bætir hann því við að núna þegar allt er orðið aftur á áætlun sé næsta mál að gera framleiðsluna hagkvæmari.

Spirit AeroSystems sendi 160 skrokka fyrir Boeing 737 til Everett á þriðja ársfjórðungi þessa árs og er séð fram á að fyrirtækið muni ná að framfylgja áætlun Boeing sem er að smíða 52 Boeing 737 þotur á mánuði.

Boeing hækkaði afkastagetu sína úr 42 þotum upp í 52 fyrr á þessu ári en vegna seinkana hjá Spirit AeroSystems og einnig hjá CFM International þá hefur framleiðandinn ekki náð að afhenda eins margar þotur á þessu ári og til stóð.

Fyrirtækið framleiðir í dag jafnmarga skrokka fyrir Boeing 737-800 og Boeing 737 MAX en stefnt er að því að árið 2019 verði 90% af framleiddum skrokkum fyrir Boeing 737 MAX.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga