flugfréttir
Tvær þotur frá Ryanair fóru of nálægt hvor annarri yfir Spáni
Boeing 737-800 þota Ryanair
Tvær farþegaþotur frá Ryanair fóru of nálægt hvor annarri er þær voru í farflugshæð yfir norðurhluta Spánar fyrr í þessum mánuði.
Flugmálayfirvöld á Spáni hafa rannsakað atvikið sem átti sér stað þann 2. október sl. en vélarnar mættust um 145 kílómetra
austur af Bilbao, skammt suður af landamærum Spánar og Frakklands.
Báðar þoturnar voru af gerðinni Boeing 737-800 en önnur þeirra var á leið frá Santiago de Compostela til Mallorca
á meðan hin var á leið frá Seville til Toulouse í Frakklandi og höfðu áhafnir beggja vélanna verið í sambandi við
flugumferðarstjórnina í Madríd.
Fram kemur að lóðréttur aðskilnaður vélanna hafi verið um 400 fet og láréttur aðskilnaður um 2.2 nm (4 kílómetrar) þegar
þær fóru næst hvor annarri og fór TCAS árekstrarvari í gang í báðum þotunum sem varð til þess að flugmennirnir á annarri
vélinni lækkuðu flugið á meðan hin þotan hækkaði sig.
Báðar vélarnar lentu á áfangastað á áætlun en aðskilnaður vélanna var undir því sem reglugerðir og verklag segir til um
sem varð til þess að atvikið var rannsakað.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.