flugfréttir
VietJet staðfestir pöntun í 50 Airbus A321neo þotur
Tölvugerð mynd af Airbus A321neo í litum VietJet
Airbus hefur fengið pöntun í fimmtíu Airbus A321neo þotur frá víetnamska lágfargjaldafélaginu VietJet Air en um er að ræða staðfesta pöntun í tengslum við samkomulag sem undirritað var á Farnborough-flugsýningunni í sumar.
Samningurinn var undirritaður í höfuðborginni Hanoi af forstjóra VietJet og Christian Scherer, sölustjóra Airbus, að viðstöddum
forsætisráðherrum Víetnams og Frakklands.
Með þessu mun heildarfjöldi þeirra farþegaþotna, sem VietJet hefur pantað úr Airbus A320 fjölskyldunni, fara upp í 171 þotu
en af þeim hafa 46 verið afhentar og á flugfélagið því von á 125 þotum til viðbótar af gerðinni Airbus A321 og A321neo.
VietJet Air á einnig von á 200 Boeing 737 MAX þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og Boeing 737 MAX 10 og gerir félagið
því ráð fyrir að fá yfir 320 þotur á næstu árum frá Boeing og Airbus.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.