flugfréttir

Boeing 767 á þrjár vikur eftir í flota British Airways

- Síðasta flug BA með Boeing 767 verður flogið þann 25. nóvember

5. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:24

Boeing 767 þota British Airways í „Chelsea Rose“ fánabúningnum á London Heathrow í júlí árið 2000

British Airways mun síðar í þessum mánuði kveðja Boeing 767 þotuna sem þjónað hefur flugfélaginu breska í tæpa þrjá áratugi.

British Airways hafði aðeins fimm Boeing 767-300ER þotur eftir í flotanum í október en eitt eintak var tekið úr umferð og færð til geymslu þann 1. nóvember og eru í dag aðeins fjórar eftir í flotanum.

Síðasta áætlunarflug British Airways með Boeing 767 verður flogið þann 25. nóvember en síðustu fjórar þoturnar verða teknar úr umferð þann 4. nóvember, 7 og 26. nóvember og þeim flogið til breska herflugvallarins í St. Athan, skammt vestur af Cardiff.

British Airways hafði alls 31 Boeing 767 breiðþotu í flotanum þegar mest var

British Airways hefur að undanförnu notað Boeing 767 í flugi frá London Heathrow til áfangastaða í Evrópu þar sem eftirspurnin er mikil en nýjar Airbus A320 og A321 þotur leysa Boeing 767 þoturnar af hólmi sem þýðir að British Airways mun ekki fljúga lengur til Evrópu með breiðþotum.

British Airways hefur ekki ákveðið að halda neina sérstaka kveðjuathöfn Boeing 767 þotunni til heiðurs og ekki er vitað hvaða örlög bíða vélanna sem verða færðar í geymslu.

British Airways flaug fyrsta flugið með Boeing 767 árið 1990 og hafði félagið 31 þotu af þessari gerð í flotanum þegar mest var.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga