flugfréttir
Icelandair kaupir WOW air
Flugvélar Icelandair og WOW air á Keflavíkurflugvelli í vor
Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air og eru kaupin m.a. gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.
Sem gagngjald fyrir hlutafé WOW Air munu hluthafar WOW air, að uppfylltum skilyrðum, eignast alls 272.341.867 hluti eða sem samsvarar um 5,4% hlutafjár Icelandair Group eftir viðskiptin. Þar af eru 178.066.520 hlutir eða sem nemur 3,5% hlutafjár gagngjald fyrir hið selda hlutafé.
Það gagngjald getur hækkað í 4,8% og lækkað í 0,0% út frá ákveðnum forsendum í tengslum við áreiðanleikakönnun. 94.275.347 hlutir eða sem samsvarar 1,8% hlutafjár eru gefin út til seljenda vegna breytingar á víkjandi láni í hlutafé. Seljendur hafa skuldbundið sig til að halda hlutum sínum í Icelandair Group í a.m.k. 6 mánuði og helming hlutanna í a.m.k. 6 mánuði til viðbótar.
Félögin verða áfram rekin undir sömu vörumerkjum en sameiginleg markaðshlutdeild þeirra á markaðnum yfir Atlantshafið er um 3,8%. Með yfirtökunni skapast tækifæri til sóknar á nýja markaði og auk þess er gert ráð fyrir að einingakostnaður Icelandair Group muni lækka. Félagið verður þannig enn betur í stakk búið til þess að veita erlendum flugfélögum öfluga samkeppni á hinum alþjóðlega flugmarkaði.
“WOW air hefur á undanförnum árum byggt upp sterkt vörumerki og náð miklum árangri á mörkuðum félagsins, til og frá Íslandi og yfir Atlantshafið. Það eru mikil tækifæri til hagræðingar en félögin verða áfram rekin á eigin forsendum undir eigin vörumerkjum og flugrekstrarleyfum. Íslensk ferðaþjónusta er grunnstoð í íslensku hagkerfi og það er mikilvægt að flugsamgöngur til og frá landinu séu í traustum skorðum“, segir Bogi Nils Bogason, starfandi forstjóri Icelandair Group.
„Ég er mjög stoltur af þeim árangri og þeirri uppbyggingu sem við hjá WOW air höfum náð á undanförnum árum og er jafnframt þakklátur fyrir þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið frá fyrsta degi“, segir Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air.
„Við höfum byggt upp öflugt teymi sem hefur náð eftirtektaverðum árangri og verið brautryðjandi í lággjaldaflugi yfir Norður-Atlantshafið. Nú tekur nýr kafli við þar sem WOW air fær tækifæri til að vaxa og dafna með öflugan bakhjarl eins og Icelandair Group sem mun styrkja stoðir félagsins enn frekar í alþjóðlegri samkeppni“, bætir Skúli við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.