flugfréttir

Telja að hreyflarnir hafi starfað fullkomnlega eðlilega

5. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 21:42

Sérfræðingar, sem koma að rannsókn slyssins, telja að hreyflarnir hafi starfað fullkomnlega eðlilega

Rannsóknarnefnd flugslysa á Indónesíu segir að sá hreyfill sem búið er að ná af hafsbotni sem tilheyrði Boeing 737 MAX þotu Lion Air, sem fórst skömmu eftir flugtak frá Jakarta þann 29. október, starfaði fullkomnlega eðlilega fyrir slysið.

Soerjanto Tjahjono, yfirmaður rannsóknarnefndarinnar, sagði á blaðamannafundi í dag að ekkert bendir til þess að bilun í hreyfli hafi orsakað slysið enn sem komið er en túrbúna hreyfilsins og brunahólf hans er þó enn ófundið.

Þá kemur fram að talið sé að flugvélin hafi fallið til jarðar á miklum hraða og ekkert bendir til þess að nein sprenging hafi komið upp meðan vélin var í loftinu.

Búið er að hala niður 69 klukkustundum af göngum úr flugrita þotunnar sem spannar seinustu 19 flugferðir hennar en ekki er enn búið að finna hljóðritann.

Ákveðið hefur verið að framlengja björgunaraðgerðum um þrjá sólarhringa til viðbótar í leit að frekara braki í sjónum og þá hefur auka mannskapi verið bætt við til að aðstoða við björgunaraðgerðir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga