flugfréttir
Ræða við flugvélaframleiðendur utan Evrópu og Ameríku
Airbus A330 breiðþota Iran Air
Iran Air leitast eftir því að hefja viðræður við flugvélaframleiðendur utan Evrópu og Bandaríkjanna í von um að geta keypt nýjar þotur án þess að viðskiptaþvinganir vestrænna landa geti haft áhrif á kaupin.
Sá samningur sem Iran Air hafði undirritað við Boeing og Airbus mun ekki ganga eftir þar sem Donald Trump, forseti
Bandaríkjanna, setti aftur viðskiptabann á Írani í vor þar sem landið hafði ekki staðið við kjarnorkusáttmála sinn.
Árið 2016 gerði Iran Air samning við Airbus um kaup á 118 þotum að andvirði 3.251 milljarðs króna, samning við Boeing um kaup á áttatíu þotum að andvirði tæpra 2 þúsund milljarða króna auk þess sem félagið pantaði tuttugu flugvélar frá ATR.
Allir flugvélaframleiðendurnir koma frá löndum sem lúta að sáttmála Bandaríkjanna um viðskiptaþvinganir gegn Íran
og ætlar Iran Air því að leita til annarra framleiðanda sem styðja ekki ákvörðun Bandaríkjanna.
„Við bjóðum alla flugvélaframleiðendur velkomna til þess að ræða við okkur sem geta skaffað okkur flugvélar“, segir
Farzaneh Sharafbafi, framkvæmdarstjóri Iran Air, sem tekur fram að flugfélagið sé í viðræðum við Rússa
um kaup á Sukhoi Superjet 100 þotunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.