flugfréttir
Áhöfn Ryanair sem svaf á gólfinu sagt upp störfum
- Ryanair birtir upptöku úr öryggismyndavél og segir að myndin sé sviðsett
Ljósmyndin sem fór eins og eldur um sinu í mörgum fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum
Ryanair hefur rekið tvo flugmenn og fjórar flugfreyjur og flugþjóna vegna ljósmyndar sem birtist af þeim sofandi á gólfinu í starfsmannaherbergi á flugvellinum í Málaga í október en lágfargjaldafélagið írska segir að ljósmyndin hafi verið sviðsett.
Það var um miðjan október sem að ljósmyndin fór eins og eldur um sinu í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum en fram
kom að um fjórar áhafnir hjá Ryanair hafi verið að ræða sem neyddust til þess að sofa á gólfinu þar sem
flugfélagið gat ekki orðið þeim úti um hótelherbergi eftir að fellibylurinn Leslie gekk yfir Portúgal.
Ryanair segir að ljósmyndin hafi verið sviðsett og hefur flugfélagið birt upptöku úr öryggismyndavél í áhafnarherberginu sem sýnir hvar
sex áhafnarmeðlimir koma sér fyrir á gólfinu líkt og þau væri sofandi á meðan aðrir í áhöfninni sjá um ljósmyndun og
standa svo allir upp að myndatöku lokinni.
Til stóð að dreifa myndinni og mótmæla þeirri slæmu aðstöðu sem þau þurftu að eyða nóttinni í á meðan þau voru strandaglópar yfir eina
nótt á sama tíma og Ryanair tilkynnti um að tekjur félagsins árið 2018 stefni í 167 milljarða króna.
Þrátt fyrir myndatökuna þá var ekki hægt að verða áhöfnunum úti um gistingu á hótelum í Málaga en klukkan 6:30 um morguninn var öllum hleypt inn í VIP setustofu í flugstöðinni.
Þrátt fyrir að vera ósofin þá þurftu áhafnirnar fjórar að ferja Boeing 737-800 þoturnar fjórar frá Málaga til Porto klukkan 11:30 um morguninn.
Skjáskot af upptöku úr öryggismyndavél í áhafnarherberginu á flugvellinum í Málaga
Ryanair segir að „sviðsetta“ ljósmyndin hafi skaðað ímynd flugfélagsins og hefur félagið staðfest að þær flugfreyjur og þeir flugmenn, sem
tóku þátt í myndatökunni, hafi verið sagt upp störfum vegna þessa.
„Öllum sex áhafnarmeðlimunum frá Porto var sagt upp sl. mánudag vegna brots á reglugerðum í samningi og vegna
óviðeigandi hátterni í starfi með því að falsa ljósmynd og koma á sögusögnum um að þau hafi neyðst til þess að sofa
á gólfinu í áhafnarherberginu í Málaga“, segir í yfirlýsingu frá Ryanair.
„Þetta hátterni skaðar orðspor atvinnurekandans og einnig höfðu þau með þessu brotið traust milli starfsmanna og yfirmanna“, segir
enn fremur.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.