flugfréttir
Boeing gefur út tilmæli vegna skynjara á Boeing 737 MAX
- Öryggistilmæli með viðbrögðum send til flugfélaga
Boeing 737 MAX þota Lion Air
Boeing hefur sent frá sér tilmæli til allra þeirra flugfélaga og flugrekstraraðila sem hafa Boeing 737 MAX þotuna í flota sínum í kjölfar flugslyssins í Indónesíu í síðustu viku.
Í tilmælunum kemur meðal annars fram viðvörun um mögulegan galla í skynjurum sem greina áfallshorn þotunnar hverju sinni en talið er að þeir geti sent frá sér misvísandi upplýsingar við vissar aðstæður.
Villa í skynjurum getur orðið til þess að hluti af stjórnflötum vélarinnar á hæðarstýri láti þotuna fara í dýfu með nefið niður á við og getur sú dýfa orðið mjög skörp.
Áfallshornsskynjari getur sent frá sér röng boð til stilliblaka á hæðarstýri
Tekið er fram að villa frá áfallshornsskynjurum („angle of attack sensors“) kemur aðeins fram sé Boeing 737 MAX þotunni flogið
handvirkt og er ekki möguleiki á að hún komi fram sé þotan á sjálfstýringu.
Áfallshornsskynjarinn skynjar það horn sem er milli vænglínu vélarinnar og loftstreymisins sem skellur á vænginn hverju sinni en það horn er mjög stór í flugtaki. Þeim mun stærra sem hornið er, því nær nálgast vélin ofris og er kerfið ætlað að koma í veg fyrir slíkt með skynjurunum.
Áfallshornsskynjari skynjar hornið sem skilur að vænglínu og stefnu
loftflæðisins um vængi vélarinnar
Stilliblökur á hæðarstýri hreyfast niður á við eða upp á við til þess að auðvelda hæðarstjórnun vélarinnar en óeðlileg stilling eða hreyfing á þeim breytir halla vélarinnar um þverás hennar sem breytir því hvort nefið vísi upp á við eða niður.
Villan verður til þess að boð eru send til búnaðar sem stjórnar stilliblöku á hæðarstýri („stabilizer trim“) sem verður til þess að þau færast
skyndilega niður á við í 10 sekúndur og koma vélinni í dýfu með nefið niður á við.
Boeing varar flugmenn við því að bregðast við með því að nota „electric stabilizer trim“ til að vinna á móti stilliblökunum á hæðarstýrinu
og grípa frekar til þess ráðs að aftengja kerfið sem stjórnar stilliblökunum. Boeing varar einnig við því að „stabilizer trim“ geti farið niður
í neðstu stöðu ef ekki er brugðist við í tæka tíð.
Boeing hefur veitt flugslysasérfræðingum í Indónesíu tæknilega aðstoð sína vegna flugslyssins er Boeing 737 MAX þota Lion Air
fórst skömmu eftir flugtak þann 29. október sl. en rannsókn á slysinu er enn í fullum gangi og er talið að allt að sex mánuðir geti liðið þar til fyrstu niðurstöður eru væntanlegar.
Hæðarstýri á Boeing 737 ásamt stilliblökum
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.