flugfréttir
Flugstjóri hjá Air India féll í annað skipti á áfengisprófi
Dreamliner-þota Air India
Air India hefur rekið yfirflugstjóra félagsins, sem er einnig yfirmaður yfir rekstrardeildinni, þar sem hann féll á áfengisprófi í annað sinn á einu ári rétt áður en hann átti að fljúga farþegaþotu félagsins frá Delhí til London Heathrow.
Árið 2017 var flugstjórinn, Kathpalia, sviptur réttindum sínum í þrjá mánuði eftir að hann neitaði að gangast
undir áfengispróf fyrir flug en honum var gefið annað tækifæri en
féll í gær á áfengisprófi og var ákveðið að víkja honum úr starfi.
Samkvæmt reglugerðum flugmálayfirvalda á Indlandi þá varðar fyrsta brot vegna neyslu áfengis fyrir flug
sviptingu á skírteini í þrjá mánuði og sviptingu í 3 ár ef flugmaður er staðinn að því í annað skipti að
vera undir áhrifum. Þriðja brot verður til þess að flugmaður er sviptur réttindum sínum varanlega.
Flugfélagið þurfti að kalla til annan flugstjóra sem var á bakvakt og olli það töluverði seinkun á fluginu.
Yfirmaður indverskra flugmálayfirvalda segir að ákvörðun um sviptingu Kathpalia verður tekin á morgun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.