flugfréttir
Air New Zealand og ATR í tæknisamstarf um nýjan aflgjafa
- Telja að rafmagn eigi eftir að ryðja sér til rúms eftir áratug í farþegaflugi
Mount Cook Airlines hefur 28 ATR flugvélar í flota sínum
Flugvélaframleiðandinn ATR og Air New Zealand hafa gert með sér samning um samstarf um þróun á að nota blandaðan orkugjafa fyrir skrúfuflugvélar í farþegaflugi.
Samningurinn snýst um rannsókn á leiðum til að uppgötva nýja tækni og hugvit og hvernig best sé að koma til móts
við aðra orkugjafa þegar þeir fara að ryðja sér til rúms á næstu árum.
„Gert er ráð fyrir því að blandaður orkugjafi eigi eftir að koma á markaðinn eftir um það bil áratug. Það fer samt eftir því
hvernig þróun á rafmangsorku miðar á næstu árum er kemur að farþegaflugvélum en við teljum að þetta eigi eftir
að skapa ný tækifæri í stuttu flugi hjá Air New Zealand“, segir Christopher Luxon, framkvæmdarstjóri flugfélagsins nýsjálenska.
Stefan Bortoli, framkvæmdarstjóri ATR, telur að rafmang eigi eftir að spila stórt hlutverk sem aflgjafi í farþegaflugi í framtíðinni
en í dag eru eingöngu litar einkaflugvélar sem eru komnar á markað sem knúnar eru rafmagni og eru þær ekki margar.
Það er Mount Cook Airlines, dótturfélag Air New Zealand, sem hefur ATR skrúfuflugvélar í flota sínum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.