flugfréttir
Farþegar greiddu fyrir viðgerð á Dreamliner-þotu
- Flugvirkjar í Kína vildu aðeins taka við reiðufé
Dreamliner-þota LOT Polish Airlines
Farþegar þurftu að greiða viðgerð á Dreamliner-þotu pólska flugfélagsins LOT Polish Airlines eftir að bilun kom upp í vélinni á flugvellinum í Peking.
Þotan var nýlent í Peking og voru flugmennirnir að skoða vélina
eftir lendingu rétt fyrir undirbúning á fluginu til baka til Póllands þegar í ljós kom bilun í dælu í vökvakerfinu.
Fram kemur að ný vökvakerfisdæla hafi verið tiltæk og var hægt að skipta um hana en farið var fram á að áhöfnin
myndi borga viðgerðina fyrirfram og það í reiðufé.
Flugmennirnir voru ekki með nægilegt lausafé á sér fyrir viðgerðinni og var því eina ráðið að athuga hvort að einhverjir af þeim farþegum, sem áttu bókað með fluginu, gætu borgað fyrir viðgerðina.
„Þeir höfðu ekkert leyfi til þess að gera þetta þar sem öll okkar viðskipti um þjónustu erlendis fara ekki fram með reiðufé“, segir
talsmaður LOT Polish Airlines.
Fjórir, rausnalegir farþegar, buðust til þess að setja í púkkið en fram kemur að viðgerðin hafi ekki kostað meira en 44 þúsund krónur og
að viðgerð lokinni fór þotan í loftið og lenti í Varsjá, níu klukkustundum á eftir áætlun.
Farþegarnir fjórir fengu framlag sitt endurgreitt strax við komuna til Póllands og verðlaunaði flugfélagið þá með frímiðum
til einhvers af áfangastöðum LOT Polish Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.