flugfréttir
Ekki sagt frá nýju sjálfvirku kerfi sem á að koma í veg fyrir ofris
- Flugmannafélagið ALPA lýsir yfir áhyggjum sínum í bréfi til NTSB og FAA
Boeing 737 MAX tilraunarþota Boeing
Atvinnuflugmannasamtökin (ALPA), sem er stærsta bandalag flugmanna í heiminum, krefjast þess að bandarísk stjórnvöld taki á vandamáli er varðar nýja tegund af flugstýringu á Boeing 737 MAX þotunum sem meðlimir samtakana telja vera virkilegt áhygguefni.
Í bréfi frá ALPA, sem samtökin hafa sent til samgönguöryggisnefndar Bandaríkjanna (NTSB)
og bandarískra flugmálayfirvalda (FAA), kemur fram að flugmenn vilja að þeir verði upplýstir um vandamálið og krefjast þeir að fá allar þær upplýsingar sem til eru um Boeing 737 MAX þotuna.
Málið varðar nýtt, sjálfvirkt kerfi sem tengist stjórnkerfi þotunnar og vilja flugmenn meina að Boeing hafi
ekki kynnt þetta kerfi fyrir þeim sem talið er að hafa átt hlut að máli í flugslysinu er Boeing 737 MAX þota Lion Air
fórst skömmu eftir flugtak í Indónesíu þann 29. október sl.
„Við höfum áhyggjur af því að það sé galli til staðar sem hefur áhrif á öryggi þotunnar og skrifum við þetta
bréf í ósk um að fá aðstoð frá ykkur við að gefa okkur heildarmynd um þennan búnað á hæðarstýri þotunnar“, segir
m.a. í bréfinu sem sent var til NTSB og FAA í gær af ALPA sem fer fyrir 61.000 flugmönnum.
„Okkur skilst að upplýsingum um þetta sjálfvirka kerfi á stilliblöðkum („stabilizer trim“) á hæðarstýrinu á Boeing 737 MAX
hefur ekki verið innleitt til flugmanna sem fljúga þotunni sem hluti af þjálfun á vélina og þá er þetta kerfi
eitthvað sem flugvirkjar vita ekki heldur af“, segir í tilkynningu.
Boeing segir að framleiðandinn hafi gefið upp allar upplýsingar um þotuna vegna þjálfunar og viðhalds
Kerfið, sem sagt er að Boeing hafi ekki kynnt formlega, heitir MCAS og stendur fyrir „Manoeuvring
Characteristics Augmentation System“ og á það að koma í veg fyrir ofris ef skynjarar greina að flugvélin
sé að nálgast ofris og eru þá boð send til kerfisins sem ýtir þá hæðarstýrinu niður sjálfkrafa.
Skýringarmynd varðandi MCAS búnaðinn
Nokkrir flugsérfræðingar telja líklegt að flugmennirnir, sem flug þotu Lion Air, hafi sennilega ekki verið alveg
með á hreinu hvernig kerfið virkaði en rannsókn á slysinu stendur enn yfir en búið er að gefa í skyn að talið
sé að skynjarar í búnaðinum hafi gefið fölsk boð til hæðarstýrisins sem fór að ýta flugvélinni niður á við þegar
hún var í flugtaki.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) tilkynntu í fyrradag að verið sé að skoða málið og sé meðal annars
verið að athuga hvort að um galla sé að ræða og einnig verður athugað hvort að þeim flugmönnum, sem hafa
fengið þjálfun á Boeing 737 MAX, hafi verið gert grein fyrir kerfinu í þjálfuninni með fullnægjandi hætti.
Boeing hefur lýst því yfir að Boeing 737 MAX þotan sé fullkomnlega örygg flugvél og hefur flugvélaframleiðandinn
veitt viðskiptavinum sínum allar þær upplýsingar er varðar þjálfun flugmanna og flugvirkjum allar tæknilegar
upplýsingar sem þeir þurfa.
Flugmenn hjá American Airlines og Southwest Airlines hafa lýst yfir áhyggjum sínum varðandi að fljúga þotunni
en Boeing hefur lýst því yfir að hægt sé að framfylgja tilmælum um viðbrögð um hvernig á að aftengja
búnaðinn strax ef sambærilegar aðstæður koma upp að nýju.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.