flugfréttir
Fastjet nær að auka hlutafé sitt
Fastjet flýgur til sextán áfangastaða í fimm löndum í fimm löndum
Stjórn flugfélagsins Fastjet í Afríku hefur tekist að hækka hlutafé félagsins um 4,9 milljarða króna en flugfélagið hefur að undanförnu reynt að leita leiða til að fjármagna reksturinn sem hefur verið tæpur sl. mánuði.
Lausafjárstaða félagsins hefur verið slæm að undanförnu og hefur óvissa ríkt um framtíð félagsins
sem var stofnað af Sir Stelios Haji-loannou árið 2012.
Fastjet tilkynnti fyrir helgi að félagið hefði náð að ljúka við fyrsta áfangann í endurfjármögnun félagsins
og þá á Fastjet einnig í viðræðum við stærstu fjáfestana og stendur til að auka hlutafé félagsins
enn frekar svo hægt verði festa kaup á fjórum Embraer E145 þotum.
Fastjet flaug sitt fyrsta flug í nóvember árið 2012 og byrjaði félagið á áætlunarflugi frá Dar es Salaam
í Tanzaníu en á sex árum eru áfangastaðir félagsins orðnir sextán talsins í Mozambique, Suður-Afríku,
Tanzaníu, Zambíu og Zimbabwe.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Fastjet nær að endurfjármagna rekstur sinn og tilkynnt að félaginu hafi verið bjargað fyrir horn en á tímabili í sumar leit út fyrir að félagið væri að stefna í gjaldþrot.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.