flugfréttir
Alitalia fær þrjár Airbus A321neo þotur frá Primera Air
Ein af Airbus A321neo þotunum nýju sem flugu fyrir Primera Air
Ítalska flugfélagið Alitalia hefur tryggt sér þrjár Airbus A321neo þotur úr flota Primera Air en félagið var nýbúið að fá þoturnar afhentar áður en það varð gjaldþrota í október.
Alitalia hefur sjálft verið gjaldþrota í eitt og hálft ár en félaginu hefur verið haldið gangandi með rekstrarfé
frá ítalska ríkinu sem hefur haldið lífi í félaginu.
Airbus A321neo þoturnar þrjár eru í eigu flugvélaleigunnar GECAS og verða þær afhentar í janúar 2019
og leysa þær af hólmi þrjár Airbus A321 þotur sem munu fara út flota Alitalia eftir áramót.
Tekjur Alitalia hafa verið að aukast hægt og bítandi undir sérstakri stjórn sem skipuð var af ítölsku ríkisstjórninni
en þrátt fyrir það þá tapar félagið 211 milljónum króna á hverjum degi.
Ríkisstjórn Ítalíu leitar nú að erlendum fjárfestum til þess að kaupa allavega 40% hlut í félaginu sem áður
var að hluta til í eigu Etihad Airways en það flugfélag hefur slitið því samstarfi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.