flugfréttir
Tveir unglingar stálu flugvél
- Voru handteknir eftir lendingu
Fisflugvélin eftir að piltarnir höfðu lent henni rétt fyrir handtöku
Tveir unglingar voru handteknir af lögreglu vestanhafs í gær eftir að þeir stálu flugvél frá litlum einkaflugvelli í Utah í Bandaríkjunum.
Um er að ræða tvo drengi, annar 14 ára og hinn 15 ára, en þeir höfðu farið af vistheimili fyrr í vikunni og dvalið
hjá vinafólki sl. daga en þaðan fóru þeir í gær og tóku dráttarvél
ófrjálsri hendi og óku að litlum einkaflugvelli í bænum Jensen.
Þar gerðu þeir sér lítið fyrir og fóru um borð í litla flugvél sem fréttamiðlar vestanhafs
segja að hafi verið af gerðinni Cessna en á mynd að dæma er um að ræða fisflugvél af gerðinni Rans S6 Coyote.
Vitni sáu til flugvélarinnar þar sem hún flaug óvenju lágt meðfram hraðbraut nr. 40 en piltarnir flugu vélinni
um 24 kílómetra til vestur og lentu loksins á Vernal Regional flugvellinum skömmu síðar.
Laganna verðir biðu eftir vélinni og voru þeir handteknir og færðir til vistunnar í fangelsi fyrir unga
afbrotamenn og eiga þeir von á að verða yfirheyrðir á næstu dögum.
Ekki fylgir fréttinni hversu mikla kunnáttu þeir hafa til þess að fljúga flugvél eða hvort þeir hafi einhverja flugtíma að baki en greinilega var það nóg til að þeir gátu starta vélinni og lenda henni giftusamlega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.