flugfréttir
Aflýsa öllu flugi vegna verkfalls
- Aerolineas Argentinas fellir niður yfir 370 flugferðir
Airbus A330 breiðþota Aerolineas Argentinas
Aerolineas Argentinas neyddist í dag til þess að fella niður á fjórða hundrað flugferðir á vegum félagsins vegna verkfallsaðgerða meðal nokkurra verkalýðsfélaga.
Félagið hefur aflýst yfir 370 flugferðum sem hefur áhrif á yfir 40.000 farþega en verkfallið kemur á
mjög óheppilegum tíma þar sem framkvæmdarstjóri félagsins lýsti því yfir í síðustu viku að flugfélagið
væri „tæknilega gjaldþrota“.
Verkfallið mun kosta Aerolineas Argentinas 2,4 milljarða króna en meðal verkalýðsfélaga sem taka þátt
í verkfallinu eru Association of Airlines Pilots (APLA), Airlines Aviators Union (UALA), Aeronautical Personnel
Association (APA) og Aviation technical Personnel Association (APTA).
Verkfallið er það fjórða í þessum mánuði og er það tilkomið vegna deilna millli verkalýðsfélaganna og
ríkisstjórnar Argentínu sem mótmæla uppsögnum á 367 starfsmönnum sem var sagt upp vegna
niðurskurðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.