flugfréttir
Uppkeyrslu á mótor endaði með árekstri
Verið var að keyra upp mótorinn á ATR flugvélinni eftir viðhaldsskoðun þegar atvikið gerðist
Engan sakaði er árekstur varð milli tveggja farþegaflugvéla á flugvellinum í Karachi í Pakistan um helgina.
Verið var að gera uppkeyrslu á mótor á ATR-72 skrúfuflugvél frá PIA Pakistan International Airlines
þegar vélin fór af stað og ók framan á aðra flugvél af gerðinni Boeing 737-400 frá Shaheen Air sem var kyrrstæð.
Vinstri mótor, skrúfa og vængbrún skemmdust á ATR-flugvélinni en vængur vélarinnar rakst framan
á nefið hægra megin á Boeing 737 þotunni.
Fjórar ATR-flugvélar hjá PIA hafa verið kyrrsettar á jörðu niðri vegna ýmissa ástæðna og verður vélin, sem
rakst á Boeing 737 þotuna, því sjötta vélin sem bætist í hópinn sem kemur sér mjög illa fyrir flugfélagið.
Ein ATR flugvél frá PIA rann út af braut í lendingu á flugvellinum í Panjgur þann 10. nóvember en hinar fjórar hafa verið lengi úr umferð og eru litlar líkur á því að þær eigi eftir að fljúga á ný vegna viðhalds.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.