flugfréttir
Sukhoi fær pöntun frá Adria Airways í SSJ100 þotuna
Tölvugerð mynd af Sukhoi Superjet 100 þotunni í litum Adria Airways
Flugfélagið Adria Airways hefur gert samkomulag við Sukhoi-flugvélaframleiðandann um pöntun á fimmtán Sukhoi Superjet 100 þotum.
Slóvneska flugfélagið mun fá fyrstu Superjet þoturnar afhentar á næsta ári og verða
þær teknar á langtímaleigu.
Holger Kowarsch, framkvæmdarstjóri Adria Airways, segir að flugfélagið hafi skoðað möguleika á þessari flugvélategund frá árinu 2016 og var niðurstaðan sú að Sukhoi Superjet 100 þoturnar
henti mjög vel rekstrinum og stefnu félagsins.
Sukhoi og Adria Airways hafa einnig gert samning um samstarf er kemur að viðgerð og viðhaldi
á vélunum sem mun fara fram í Ljubljana.
Adria Airways verður annað flugfélagið í Evrópu til þess að fá Sukhoi Superjet 100 þotuna
að Rússlandi undanskildu en nú þegar hafa verið afhent 147 eintök af þotunni frá
því hún kom á markað árið 2011.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.