flugfréttir

Bandarískt fyrirtæki fjárfestir í WOW air

- WOW air hefur náð samkomulagi við fyrirtækið Indigo Partners

29. nóvember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:27

Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, hefur náð samkomulagi við bandaríska fyrirtækið Indigo Partners

Fjárfestingarfyrirtækið Indigo Partners hefur fallist á að fjárfesta í WOW air en tilkynnt var í kvöld að WOW air hefði náð samkomulagi við fyrirtækið.

Í tilkynningu frá WOW air kemur fram að um samkomulag til bráðabirgða sé að ræða en í fjölmiðlum í morgun var greint frá því að Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, ætti í viðræðum við erlenda aðila um fjárfestingar í félaginu eftir að Icelandair Group og WOW air ákváðu að falla frá kaupsamningi sem gerður var fyrr í þessum mánuði.

„Ég hlakka til að starfa með Indigo og ég er sann­færður um að þetta er besta lang­tíma skrefið fyr­ir starfs­fólk okk­ar og farþeg­ana,“ seg­ir Skúli Mo­gensen í til­kynn­ing­unni.

Indigo Partners er bandarískt fyrirtæki sem hefur stofnað nokkur lágfargjaldaflugfélög í heiminum en fyrirtækið lagði inn til Airbus stærstu flugvélapöntun sem gerð hefur verið í sögu flugsins í nóvember í fyrra er fyrirtækið pantaði 430 þotur á einu bretti.

Fyrirtækið, sem hefur höfuðstöðvar í Phoenix í Arizona, á meðal annars hlut í ungverska lágfargjaldafélginu Wizz Air, Tiger Airways í Singapore og Spirit Airlines, sem er eitt af stærstu lágfargjaldafélögum Bandaríkjanna.

Bandaríska fyrirtækið Plane View Partners er mun veita WOW air ráðgjöf varðandi viðskiptin en fram kemur að WOW air og Indigo Partners ætli sér að ljúka frá samningum sem allra fyrst.

Höfuðstöðvar Indigo Partners í Phoenix í Arizona







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga