flugfréttir

Boeing 737 MAX þotur Southwest uppfærðar vegna áfallshorns

- Næstu afhendingar koma með nýjum „AoA“ vísirum í stjórnskjá

3. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:50

Stjórnskjár um borð í Boeing 737 MAX þotu

Næstu Boeing 737 MAX þotur sem Southwest Airlines fær afhentar munu koma með nýrri uppfærslu af stjórnskjám sem sýnir flugmönnum betur áfallshorn flugvélanna með nákvæmari hætti.

Southwest Airlines vill með þessu tryggja það að flugmennirnir sínir verði varir við það ef upplýsingar um óeðlilegt áfallshorn koma fram í flugi og geti flugmenn með því brugðist við í tæka tíð áður en nýtt, sjálfkrafa kerfi fer að leiðrétta áfallshornið sé þess ekki þörf.

Flugfélagið gerir þetta í tengslum við Lion Air flugslysið í Indónesíu þann 29. október sl. en talið er að nýtt kerfi, sem nefnist MCAS, sem á að bregðast sjálfkrafa við óeðlilegri breytingu á áfallshorni, hafi spilað stórt hlutverk sem orsök flugslyssins.

Southwest Airlines hefur stærsta hóp Boeing 737 flugmanna í heiminum og voru þeir upplýstir um breytinguna nýverið og munu nýjar Boeing 737 MAX þotur, sem afhentar verða félaginu frá og með þessum mánuði, koma með nýju uppfærslunni.

Stjórnskjáirnir í næstu 737 MAX þotum sem afhentar verða koma með nýrri uppfærslu af „Angle of Attack“ (AoA) vísirum þar sem flugmenn munu geta fylgst með áfallshorninu með öruggari hætti og gripið inn í ef villa kemur upp en samkvæmt rannsóknarnefndinni, sem hefur rannsakað Lion Air flugslysið, þá kom í ljós að MCAS-kerfið fór 26 sinnum í gang við að leiðrétta við ofrisi sem var ekki til staðar sem varð til þess að vélin steyptist fram fyrir sig.

Í rauða hringnum má sjá var hægt er að sjá áfallshorn vélarinnar í HUD-skjá („Heads Up Display“)

Southwest Airlines ætlar sér einnig að skipta út nýja kerfinu fyrir allar þær Boeing 737 MAX þotur sem félagið hefur nú þegar fengið afhentar.

Í dag er eina vísirinn, sem sýnir áfallshornið á Boeing 737 MAX þotum Southwest, að finna á HUD-skjánum flugstjóramegin að sögn talsmanns Southwest Airlines.

Um 80% af Boeing 737 þotum Southwest Airlines eru komnar með slíka skjái sem eru gegnsæir skjáir sem hægt er að horfa í gegnum en vísirinn, sem sýnir áfallshornið á þeim skjám, hafa ekki verið virkjaðir ennþá á Boeing 737NG þotunum í flota félagsins.

Talsmaður American Airlines segir að vísir sem sýnir áfallshornið á aðalflugskjám (PFD) á Boeing 737 þotum félagins sé búinn að vera til staðar frá tíunda áratugnum og sé hann einnig á þeim Boeing 737 MAX þotum sem American Airlines hefur fengið afhentar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga