flugfréttir

Nýr forseti Mexíkó ætlar að selja forsetaflugvélina

- Ætlar að ferðast með áætlunarflugi eins og annað fólk

4. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:45

Nýr forseti Mexíkó ætlar að ferðast með áætlunarflugi

Andrés Manuel Lópzez Obrado, nýr forseti Mexíkó, hefur ákveðið að selja forsetaflugvélina sína og ferðast með almennu áætlunarflugi eins og annað fólk í opinberum erindargjörðum og heimsóknum.

Obrado tók við forsetaembættinu þann
2. desember sl. eftir að hann sigraði í forsetakosningunum í Mexíkó í byrjun júlí í sumar en eitt af loforðum hans var að fljúga ekki með sérstakri forsetaflugvél eins og flestir þjóðhöfðingjar í heiminum gera.

Forsetaflugvélin er ný Dreamliner-þota af gerðinni Boeing 787-8 en þotan var afhent ný árið 2016 í valdatíð Pena Nieto fyrir 26,5 milljarða króna.

Obrado sagði í ræðu sinni sl. laugardag við mikinn fögnuð að til stæði að selja forsetaflugvélina, 70 aðrar flugvélar og 60 þyrlur í eigu ríkisins sem notaðar voru af spilltum stjórnmálamönnum og væri það einn liður hans í að uppræta spillinguna í Mexíkó.

Forsetaflugvélin var afhent árið 2016 í valdatíð Felipe Calderon

Forsetaþotan, sem er VIP-þota þota, kemur með sérhönnuðum innréttingum, fundarherbergi, forsetasvítu með „king size“ rúmi og öðrum lúxus en hún leysti af hólmi eldri forsetaflugvélina sem var af gerðinni Boeing 757.

Í kappræðu sinni fyrr á þessu ári sagði Obrado einnig að forsetaflugvél væri of mikið fyrir hann og hefði hann ekkert með hana að gera.

Mexíkóski auðkýfingurinn Gustavo Jimenez Pons hefur nú þegar sýnt forsetaflugvélinni áhuga og er hann til í að greiða 12,2 milljarða fyrir flugvélina til að leigja hana út sem lúxusþotu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga