flugfréttir
Bogi Nils Bogason ráðinn forstjóri Icelandair Group
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group
Stjórn Icelandair Group hefur gengið frá ráðningu Boga Nils Bogasonar í starf forstjóra fyrirtækisins. Bogi Nils hefur verið starfandi forstjóri Icelandair Group frá því í lok ágúst síðastliðinn.
Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair Group:
„Þegar Björgólfur Jóhannsson lét af störfum hóf stjórn félagsins samstundis faglegt ferli við leit að eftirmanni hans. Capacent á Íslandi og alþjóðlega ráðningarfyrirtækið Spencer Stuart aðstoðuðu við leitina.
Það kom skýrt fram í þessu ferli hversu virt og þekkt vörumerki Icelandair er um allan heim og ánægjulegt að finna þann áhuga sem margir mjög hæfir einstaklingar, bæði íslenskir og erlendir, sýndu starfinu. Það var afdráttarlaus niðurstaða stjórnar að Bogi Nils sé hæfasti einstaklingurinn í starfið. Hann gjörþekkir fyrirtækið, hefur skýra framtíðarsýn og er vel til þess fallinn að stýra því til móts við nýja tíma.“
„Það er mér mikill heiður að hafa verið beðinn um að leiða þann frábæra hóp starfsmanna sem starfar hjá Icelandair Group. Við erum stolt af þeim sessi sem við skipum í hugum landsmanna og viljum standa undir því trausti sem okkur hefur verið sýnt í gegnum árin“, segir Bogi NIils Bogason, forstjóri Icelandair Group.
„Framundan eru bæði spennandi og krefjandi tímar fyrir félagið, sem kalla á skýra framtíðarsýn og hagkvæman rekstur. Icelandair Group hefur styrkar stoðir sem byggt verður á til sóknar á næstu misserum.“, bætir hann við.
Bogi Nils gegndi stöðu framkvæmdastjóra fjármála Icelandair Group frá október 2008. Áður var hann framkvæmdastjóri fjármála hjá Askar Capital 2007 til 2008 og framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandic Group 2004 til 2006. Hann var endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG á árunum 1993 til 2004.
Bogi Nils er fæddur árið 1969 og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Hann er kvæntur Björk Unnarsdóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjú börn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.