flugfréttir
Tíunda veggspjaldið fjallar um álag og streitu
Tíunda „Dirty Dozen“ veggspjaldið fjallar um stress
Samgöngustofa hefur gefið út tíunda veggspjaldið af tólf í Dirty Dozen röðinni en að þessu sinni er fjallað um álag og viðbrögðum við streitu sem geta skert flugöryggi.
Meðal atriða sem talið er upp á veggspjaldinu eru leiðir til að draga úr þeirri áhættu
sem streita getur haft á flug með því að vera meðvitaður um einkenni álags og hvernig
hægt er að draga úr því með ýmsum leiðum á borð við næringu og hreyfingu.
Hugmyndin að „The Dirty Dozen“ listanum kemur frá Gordon DuPont sem tók listann saman árið 1993 þegar hann starfaði hjá Transport Canada.
DuPont nýtti þessi atriði við þjálfun og fræðslu til flugvirkja á mannlega þættinum og hefur hann síðan verið notaður um allan heim.
Listinn vísar einnig til veggspjaldaherferðar „The Maintenance And Ramp Safety Society (MARSS) sem veggspjöld Samgöngustofu byggja á.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.