flugfréttir
Fækka þotum til að koma í veg fyrir lögsókn frá flugvélaleigu
Airbus A320 þota Avianca Brazil
Flugfélagið Avianca Brazil neyðist til þess að fækka flugvélunum í flotanum með því að losa sig við átta flugvélar og skila þeim til baka til flugvélaleigu sem á vélarnar til að komast hjá lögsókn.
Flugvélaleigan Aircastle hefur fengið leyfi frá brasilískum stjórvöldum um að vörslusvipta
og taka yfir eignarhald á þrettán Airbus-þotum í flota Avianca Brazil af gerðinni Airbus A320 og Airbus A330.
Brasilískir fjölmiðlar segja að ellefu þotur séu í eigu Aircastle og tvær Airbus A320neo þotur séu
í eigu BOC Aviation á Írlandi.
Avianca Brazil segir að félagið hafi lengi ætlað að fækka flugvélunum í flotanum en ekki kemur fram
hvort að málið varði vangoldin leigugjöld á vélunum.
Avianca Brazil er eitt af dótturfélögum Avianca sem starfrækir dótturfélög í mörgum öðrum löndum
í Suður-Ameríku og Mið-Ameríku en brasilíska dótturfélagið hefur 56 Airbus-þotur í flotanum.
Stjórn Aircastle sagði hluthöfum sínum á hluthafafundi í síðasta mánuði að þeir hefðu nokkrar
Airbus-þotur í Brasilíu sem verið væri að finna nýtt heimili og var því gefið í skyn að til stæði að „sækja“ þær
þotur á næstunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.