flugfréttir
Fyrsta risaþotan hjá Lufthansa máluð í nýju litunum
D-AIMD í flugtaki í morgun á leið til Miami
Nýlega var lokið við að mála fyrstu Airbus A380 þotuna í nýjum litum Lufthansa en það var þotan D-AIMD sem var fyrsta risaþotan a þeim fjórtán sem máluð var.
D-AIMD flaug í dag sitt fyrsta áætlunarflug frá Munchen til Miami í nýja búningnum en flugáhugamenn hafa misjafnar skoðanir á nýja útlitinu þar sem mörgum hefur fundist að Lufthansa hefði átt að halda í gula litinn í stélinu.
Þotan var máluð í Guangzhou í Kína og kom til aftur til Þýskalands í nýju litunum í morgun og
var hún strax undirbúin fyrir fyrsta flugið.
Lufthansa gerir ráð fyrir að vera búið að mála allan flugflotann árið 2025 en félagið hefur 285
þotur í flotanum og þar af fjórtán risaþotur.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.