flugfréttir
Flugvöllurinn í Perth fer í mál við Qantas
Boeing 737-800 þota Qantas á flugvellinum í Perth
Flugvöllurinn í Perth í Ástralíu hefur höfðað mál gegn Qantas vegna vangoldinna skulda en stjórn flugvallarins segir að flugfélagið ástralska hafi ekki greitt lendingargjöld í þónokkurn tíma.
Heildarskuldin hljóðar upp á 991 milljón krónur og hefur stjórn flugvallarins gert greiðslusamkomulag
í nokkur skipti við Qantas um niðurgreiðslu skuldarinnar á sl. 18 mánuðum
sem félagið hefur ekki náð að standa við.
Flugvöllurinn segir að málið muni ekki hafa áhrif á þjónustu og farþega Qantas en það gæti þó
haft áhrif á áform Qantas sem stefnir á að auka umsvif sín í Perth á næstunni.
Qantas segir að reikningar fyrir þjónustugjöldum frá flugvellinum hafi verið hærri en samið var
um og er flugfélagið tilbúið að greiða þær greiðslur sem til er ætlast en þó ekki með þeirri
hækkun sem bitnar á farþegum með hærri fargjöldum.
Þá hefur flugvallarfyrirtækið Northern Territory Airports, sem á og rekur flugvellina í Alice Springs
og Darwin, einnig varað Qantas við málaferlum vegna ógreiddra gjalda þar sem flugfélagið hefur
ekki náð samkomulagi um nýja gjaldskrá varðandi þjónustugjöld.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.