flugfréttir

Ryanair fær síðustu Boeing 737-800 þotuna afhenta

17. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:54

Boeing 737-800 þota Ryanair

Boeing hefur afhent síðasta eintakið af Boeing 737-800 þotunni til Ryanair sem er einnig síðasta af Next Generation gerðinni og hefur lágfargjaldafélagið írska því tekið við 531 þotu af þeirri kynslóð frá upphafi.

Ryanair pantaði fyrstu Boeing 737NG þotuna í mars árið 1998 og var fyrsta þotan, sem var af gerðinni Boeing 737-800, afhent til félagsins árið 1999.

Að meðaltali hefur Ryanair fengið 25 þotur af gerðinni Boeing 737-800 afhentar á hverju ári frá árinu 1999 en félagið hefur í dag eingöngu Boeing 737-800 í flotanum sem telur 442 flugvélar af þeirri gerð.

„Þetta tímabil er nú á enda og nýir tímar taka við“, segir í Twitter-færslu hjá Ryanair sem mun á næstunni taka við fyrstu Boeing 737 MAX þotunum en félagið hefur pantað 135 eintök af Boeing 737 MAX 200 sem er sérstök útgáfa sem kemur með sætum fyrir 200 farþega en fyrsta eintakið verður afhent til félagsins í apríl.

Meðal annara tegund af þotum sem Ryanair hefur haft í flotanum frá stofnun félagsins árið 1984 eru vélar af gerðinni Boeing 737-200, Boeing 737-300, ATR 42-300 en félagið hóf rekstur með Embraer EMB 110 Bandeirante flugvélum og Hawker Siddeley HS 748.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga