flugfréttir

Fór út af braut eftir að önnur flugvél truflaði boð frá ILS kerfi

18. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 10:25

Boeing 777-300ER þotan eftir að hún staðnæmdist hægra megin við flugbrautina á flugvellinum í Munchen árið 2011

Talið er að truflun í ILS blindaðflugsbúnaði frá annarri flugvél hafi orsakað atvik er Boeing 777-300ER þota frá Singapore Airlines fór út af flugbraut í lendingu á flugvellinum í Munchen þann
1. nóvember árið 2011.

Í lokaskýrslu frá rannsóknarnefnd flugslysa í Þýskalandi kemur fram að Boeing 777-300ER þotan hafi verið í aðflugi með sjálfstýrða lendingu virka sem talið er hafa verið eðlilegt þar sem skýjahæð hafi verið í 300 fetum og minna en 2 km skyggni.

Þotan var í CAT I aðflugi og kemur fram að flugstjórinn hafi ekki tilkynnt flugumferðarstjórum að þeir hafi ætlað að láta flugvélina lenda sjálfkrafa en á sama tíma fékk þota af gerðinni Avro RJ85 flugtaksheimild á sama tíma og Boeing 777 þotan var í 2.1 nm fjarlægð á lokastefnu.

Þegar Boeing 777 þotan var í 50 feta hæð yfir þröskuldi brautarinnar var Avro RJ85 þotan í flugtaksklifri og nýfarin framjá miðlínuloftneti („localizer“) sem hafði mikil áhrif á merkjasendingar þar sem klifurhraði vélarinnar var frekar lágur.

Truflunin raskaði boð frá ILS kerfinu sem varð til þess að Boeing 777 þotan hóf að sveigja hægt og rólega til hægri og brugðust flugmennirnir við því með að hætta við lendingu og fara í fráflug („go around“).

Stjórnkerfi þotunnar leyfðu hinsvegar ekki fráhvarfsflug þar sem hjólin höfðu snert brautina og leyfir kerfið ekki þann möguleika á að hætta við lendingu í sjálfvirkum lendingarham þegar svo ber undir.

Flugmennirnir sögðu í viðtali við flugmálayfirvöld að fara í handvirkt fráhvarfsflug hefði sennilega verið mjög áhættusamt þegar flugvélin er komin með hjólin á brautina og hefði það geta farið mun verr.

Sjálfstýringin var enn virk þegar vélin var í lendingarbruninu og elti merkin frá miðlínuloftnetinu sem beindi henni til vinstri af miðju brautarinnar og reyndi flugstjórinn að vinna á móti með því að beita hliðarstýrinu til hægri en án árangurs.

Vélin fór út af brautinni á 123 hnúta hraða og ók um 400 metra eftir grasinu vinstra megin við brautina en þegar báðir flugmennirnir beittu hliðarstýrinu til hægri aftengdist sjálfstýringin og vélin fór aftur inn á brautina en tók 40° beygju og fór út af brautinni hægra megin.

Þrátt fyrir þetta þá urðu engar skemmdir á flugvélinni þar sem hún sökk ekki ofan í jarðveginn og ekki þurfti að notast við neyðarrennibrautir. Um borð voru 162 farþegar og sakaði engann.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga