flugfréttir

Drónar halda Gatwick í gíslingu - Flugvöllurinn lokaður í 22 tíma

- Víðtæk leit lögreglu stendur yfir - Öllu flugi aflýst

20. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 18:55

Fyrst var tilkynnt um dróna í gærkvöldi klukkan 21 að breskum tíma / Myndin er sviðsett

Öll flugumferð um Gatwick-flugvöllinn í London hefur legið niðri núna í tæpan sólarhring þar sem ítarlega hefur sést til dróna sem hefur verið vísvitandi verið flogið yfir flugvöllinn en umfangsmikil leit lögreglu í dag að stjórnendum drónanna hefur enn engan árangur borið.

Á vefsíðu Gatwick-flugvallarins má sjá að allar brottfarir eru merktar sem „aflýst“ og þá hefur öllu komuflugi verið aflýst eða flugvélum beint á annan flugvöll.

Þetta er stærsta röskun sem orðið hefur á flugumferð vegna dróna en fjarstýrð flygildi hafa verið mikil til umræðu að undanförnu vegna atvika sem hafa átt sér stað þar sem drónum hefur verið flogið í veg fyrir flugvélar víðsvegar um heim.

Á vefsíðu Gatwick-flugvallarins má sjá að öllu flugi hefur verið aflýst

Lögregla í Bretlandi segir að um vísvitandi verknað sé að ræða en flugvöllurinn hefur verið lokaður hátt í einn sólarhring en fyrst var vart við dróna nálægt flugvellinum klukkan 21:00 í gærkvöldi að breskum tíma en þá þurftu þotur frá Thomas Cook, easyJet, TUI Airways, British Airways og Wizz Air að fara í biðflug og fljúga í hringi.

Drónar birtast alltaf á ný þegar til stendur að opna

Lögregla hefur verið á vettvangi frá því í gærkvöldi og reynt að hafa uppi á þeim sem hafa stjórnað þeim og haldið flugvellinum í gíslingu.

„Í hvert skipti sem við teljum okkur vera nálægt því að hafa hendur í hári þeirra þá eru þeir horfnir á braut. Í hvert skipti sem til stendur að opna flugvöllinn að nýja þá birtast drónarnir aftur“, segir Justin Burtenshaw hjá lögreglunni í Sussex.

Um 10.000 farþegar eru nú strandaglópar á Gatwick-flugvelli

Opnað var aftur fyrir flugumferð klukkan 3 í nótt en 45 mínútum síðar var aftur tilkynnt um dróna yfir flugvellinum og var flugvellinum þá aftur lokað.

Breska varnarmálaráðuneytið hefur útvegað lögreglunni sérstakan búnað til þess að hafa uppi á stjórnendum drónanna og þá hefur sérútbúin lögregluþyrla verið á sveimi yfir svæðinu.

Fyrsta ljósmyndin sem birtist af einum af þeim drónum sem hafa verið á sveimi yfir Gatwick-flugvelli

„Venjulega þegar sést til dróna þá er flugvöllum lokað í um hálftíma“, segir flugsérfræðingurinn Jon Parker sem er einnig fyrrum herflugmaður og yfirmaður drónafyrirtækisins Flybe Technology.

Í NOTAM skilaboðum til flugmanna segir að flugvöllurinn sé ekki nothæfur vegna ómannarða loftfara innan flugvallarsvæðisins.

Alls hefur verið um 760 flugferðum aflýst til og frá Gatwick og eru flugstöðvarnar á flugvellinum að fyllast af farþegum sem eiga bókað flug út í heim.

Á Flightradar24.com má sjá að engin flugumferð er um Gatwick en 110.000 farþegar eiga í dag bókað flug á mjög annasömum tíma þegar aðeins 4 dagar eru til jóla.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga