flugfréttir

Maður og kona handtekin vegna drónaárásar á Gatwick

- Sást til þeirra pakka niður dróna í bakpoka og flýja á brott á reiðhjólum

22. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:48

Lögregla í Bretlandi handtók í gærkvöldi karlmann á fimmtugsaldri og konu á sextugsaldri í tengslum við drónaárásina á Gatwick-flugvöll

Tveir hafa verið handteknir í Bretlandi í tengslum við drónaárás á Gatwick-flugvöll sem opnaði að nýju í gær eftir að hafa verið lokaður í einn og hálfan sólarhring frá því á miðvikudagskvöldið.

Lögreglan í Bretlandi tilkynnti í morgun að tveir væru nú í haldi vegna málsins en um er að ræða 47 ára gamlan karlmann og 57 ára konu.

Handtakan var gerð í kjölfar tilkynningu frá vitni sem sagðist hafa séð miðaldra mann og konu setja dróna ofan í bakpoka og fara af vettvangi á reiðhjóli í grennd við Gatwick-flugvöll.

Maðurinn og konan voru handtekinn í hverfinu Crawley rétt hjá flugvellinum skömmu eftir klukkan 22:00 í gærkvöldi en íbúar hverfisins hafa mótmælt harðlega áformum um opnun á „hinni“ flugbrautinni á Gatwick sem til stendur að taka í notkun á ný.

Að minnsta kosti tveimur drónum var ítrekað flogið yfir flugvöllinn í þeim tilgangi að tefja flugumferð og er þetta stærsta truflun á flugi sem átt hefur sér stað vegna dróna.

Tugþúsundir farþega biðu á Gatwick-flugvelli sl. fimmtudag eftir að komast leiðar sinnar

Yfir 900 flugferðum var aflýst og hafði drónaárásin áhrif á 140.000 farþega sem ýmist áttu bókað flug frá Gatwick eða voru á leið til flugvallarins þegar honum var lokað.

Atvikið hefur vakið upp spurningar um áhrif dróna á flugöryggi og er talið að þetta muni hrynda af stað nýjum reglugerðum varðandi notkun dróna í Bretlandi og þessvegna víðar.

Erfiðlega gekk í fyrstu að hefja flug að nýju þar sem tugþúsundir farþega biðu á flugvellinum eftir að komast leiðar sinnar eftir að hafa gist á flugvellinum og margir sváfu á gólfinu á flugstöðinni og kvörtuðu undan kulda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga