flugfréttir
Gleymdu að loka glugga í stjórnklefa fyrir flugtak
Airbus A330 breiðþota Turkish Airlines í flugtaki á flugvellinum í Höfðaborg í Suður-Afríku
Breiðþota af gerðinni Airbus A330-300 frá Turkish Airlines þurfti að hætta við flugtak á flugvellinum í Jóhannesarborg þann 19. desember sl. eftir að flugmennirnir áttuðu sig á því að þeir höfðu gleymt að loka glugga í stjórnklefanum.
Þotan var í flugtaksbruni á leið til Istanbúl þegar flugmennirnir urðu varir við að einn glugginn var opinn
og þurftu þeir að hætta við flugtakið og stöðva vélina sem var komin á yfir 130 hnúta hraða í bruninu.
Eftir að þotan hafði staðnæmst yfirgaf hún brautina og ók í átt að flugstöðinni en í ljós kom að eitt dekk hafði
sprungið auk þess sem skemmdir voru á hjólastelli.
Hætt var við flugið og þurfti að koma farþegum fyrir á hóteli og hélt hún af stað til Istanbúl daginn eftir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.