flugfréttir

Bombardier afhendir fyrstu Global 7500 einkaþotuna

- Hafa fengið yfir 100 pantanir í Global 7500

27. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 08:36

Fyrsta eintakið af Global 7500 einkaþotunni við afhendingarathöfnina þann 20. desember sl.

Bombardier afhenti á dögunum fyrsta eintakið af hinni nýju Bombardier Global 7500 einkaþotu við hátíðlega athöfn sem fram fór í Dorval í Quebec þann 20. desember síðastliðinn.

Það er fyrirtækið Jetstar and Stonebriar Commercial Finance sem hefur fengið fyrstu Global 7500 einkaþotuna en flugvélaframleiðandinn stefnir á að afhenda fimmtán til tuttugu eintök af þotunni árið 2019.

Global 7500 einkaþotan er uppseld til ársins 2022 en Bombardier hefur nú þegar fengið pantanir í yfir 100 eintök.

Global 7500 var fyrst kynnt til sögunnar árið 2010 sem Global 7000 og einnig stóð til að smíða Global 8000 en nafni þotnanna var breytt í Global 7500 til að endurspegla hið langa flugdrægi þotunnar sem er yfir 7.700 mílur (nm) en Bombardier hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort að Global 8000 verði framleidd.

Global 7500 einkaþotan er uppseld til ársins 2022

Niki Lauda, fyrrum Formúla 1 kappakstursökuþór og stofnandi flugfélagsins Niki og Lauda Air, og nú eigandi Laudamotion, var sá fyrsti sem lagði inn pöntun í Global 7500 árið 2015 en hann var þá gerður að sérstökum heiðurssendiherra fyrir Bombardier.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga