flugfréttir
Icelandair semur um fjármögnun á fyrirframgreiðslum flugvéla
- Samningur undirritaður við BOC Aviation um greiðslur af Boeing 737 MAX
Boeing 737 MAX þota Icelandair á Reykjavíkurflugvelli
Icelandair Group hefur gengið frá samningi við BOC Aviation um fjármögnun á fyrirframgreiðslum á Boeing 737 MAX flugvélum félagsins sem eru til afhendingar árin 2019 og 2020.
Áætlaður afhendingardagur síðustu vélanna er í mars 2020. Samtals mun fjármögnunin nema um 200 milljónum USD á tímabilinu og sjóðsstaða félagsins hækkar um 160 milljónir USD í kjölfar samningsins.
Til viðbótar hafa félögin samið um sölu og endurleigu á tveimur af þeim Boeing 737 flugvélum sem samningurinn nær yfir. Önnur þessara flugvéla verður afhent á árinu 2019 og hin árið 2020. Leigutími vélanna er 12 ár með kauprétti að loknum 30 mánaða leigutíma.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.