flugfréttir

Franskt fyrirtæki eignast helmingshlut í Gatwick

- Vinci Airports kaupir 50.01% hlut í næststærsta flugvelli Bretlands

27. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:49

Gatwick er annar stærsti flugvöllur Bretlands

Helmingshlutur Gatwick-flugvallarins hefur verið seldur til franska fyrirtækisins Vinci Airports sem hefur nú eignast 50.01% hlut í flugvellinum.

Vinci Airports segir að fyrirtækið muni greiða um 2.9 milljarða sterlingspunda fyrir hlutinn sem nemur 428 milljörðum króna en núverandi eigandi, Global Infrastructure Partners, mun halda 49.99 prósenta hlutnum á móti Vinci.

Vinci er fjárfestingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framkvæmdum og stjórnun á sviði samgangna og á fyrirtækið meðal annars og rekur 46 flugvelli í Frakklandi, Portúgal og Bretlandi auk flugvalla í Bandaríkjunum, Asíu og Suður-Ameríku.

Stewart Wingate, framkvæmdarstjóri Gatwick-flugvallarins, segir að farþegar og viðskiptavinir muni ekki koma til með að finna fyrir neinum breytingum.

„Þetta eru góðar fréttir fyrir flugvöllinn þar sem þetta greiðir leiðina fyrir enn frekari fjárfestingar í framkvæmdum á næstu árum. Við fljúgum eins og er til 220 áfangastaða um allan heim og stefnum við á að gera enn betur á næstu árum“, segir Wingate.

Vinci Airports sér fram á mörg tækifæri með kaupunum og bendir á að eitt verkefnið sem farið verður í er að stækka Gatwick-flugvöll með því að taka í notkun „hina“ flugbrautina sem hefur ekki verið notuð fyrir flugtök og lendingar í mörg ár.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga