flugfréttir
Sukhoi gæti misst eina evrópska viðskiptavininn
Sukhoi Superjet 100 þota CityJet
Svo gæti farið að rússneski flugvélaframleiðandinn Sukhoi muni missa eina evrópska viðskiptavininn sem fyrirtækið hefur sem er írska flugfélagið Cityjet.
Cityjet er eina flugfélagið í Evrópu sem hefur pantað Sukhoi Superjet 100 þotuna
og hefur félagið í dag sjö þotur af þeirri gerð í flotanum.
Þar sem að Cityjet ætlar að breyta reksrinum og hætta almennu áætlunarflugi og einblína frekar á flugvélaleigu og sjá um flugrekstur
á útleigðum þotum til annarra flugfélaga gæti stefnt í að félagið muni hætta
með Sukhoi Superjet 100 þoturnar.
Sukhoi segist eiga í viðræðum við Cityjet vegna þessa en einhver flugfélög í vestrænum löndum hafa kvartað undan slæmri þjónustu frá Sukhoi er kemur
að viðhaldi og varahlutum.
Það var ein ástæða þess að Brussels Airlines hætti við samning um leigu
á Sukhoi Superjet 100 þotum sem félagið gerði árið 2017 þar sem félagið efaðist
um hversu áreiðanleg þjónustan var frá Sukhoi er kemur að viðhaldi og einnig
vegna ýmissa byrjunarörðugleika.
Þá hefur mexíkóska flugfélagið Interjet komið illa út úr kaupunum á Sukhoi Superjet 100 þotunni sem átti að spara félaginu milljónir í rekstri vegna lágs rekstarkostnaðar en félagið var farið að rífa niður nýjar þotur til að nálgast varahluti til að halda flotanum á lofti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.