flugfréttir
Fella niður allt flug vegna skorts á flugmönnum
Embraer ERJ145 þota California Pacific Airlines
Bandaríska flugfélagið California Pacific Airlines hefur fellt niður allt áætlunarflug í janúar eftir áramót vegna skorts á flugmönnum.
California Pacific Airlines hefur sinnt áælunarflugi frá McClellan-Palomar flugvellinum í Carlsbad til Las Vegas, Phoenix, Reno og San Jose en félagið
hóf starfsemi sína í byrjun nóvember síðastliðinn.
Þann 28. desember gaf flugfélagið frá sér tilkynningu þar sem fram kom
að öllu flugi verði aflýst frá og með 1. janúar vegna skorts á flugmönnum en
félagið stefnir á að hefja flug að nýju um leið og búið verður að ráða og þjálfa
fleiri flugmenn.
California Pacific Airlines neyddist til að fella niður allt flug þann 10. og 11. desember
en félagið segir að ein ástæða vandamálsins séu auknar kröfur sem gerðar
eru til þjálfun flugmanna sem félagið hefur ekki náð að uppfylla í tæka tíð.
Flugfélagið hefur fjórar Embraer ERJ145 þotur í flotanum en skömmu eftir
að starfsemin hófst í síðasta mánuði þurfti félagið oft að aflýsa flugferðum
vegna tæknilegra vandamála en síðar var greint frá því að skortur
á flugmönnum væri ástæðan.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.