flugfréttir

Þrjár þotur of nálægt hvor annarri yfir Indlandi

31. desember 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:50

Samsett mynd sem tengist fréttinni ekki beint

Flugmálayfirvöld á Indlandi rannsaka nú atvik er þrjár þotur voru samankomnar hættulega nálægt hvor annarri með of lítinn aðskilnað í lofthelginni yfir Nýju-Delí á Þorláksmessu.

Fyrst var um að ræða fraktþotu af gerðinni Boeing 747-400F frá National Airlines Cargo sem var í 31.000 fetum á leið frá Bagram í Afghanistan til Hong Kong.

Árekstrarvari (TCAS) þeirrar flugvélar fór í gang eftir að hún fór of nálægt þotu af gerðinni Boeing 777-300ER frá EVA Air sem var í 32.000 fetum á leið frá Taipei og Bangkok til Vín í Austurríki.

Báðar flugvélarnar hækkuðu flughæð sína upp í 32.000 fet sem varð til þess að þær fóru of nálægt þriðju þotunni sem var Boeing 777-300ER flugvél frá KLM Royal Dutch Airlines sem var í 33.000 fetum á leið frá Bangkok til Amsterdam.

Flugumferðarstjóri gaf flugmönnum á fraktþotu National Airlines skipun um að hækka ekki flugið meira og beygja til vinstri en eftir það voru allar flugvélarnar þrjár á öruggri leið og hættan liðin hjá.

KLM gaf í gær frá sér yfirlýsingu vegna atviksins þar sem fram kemur að þotan á vegum félagsins hafi aldrei verið í hættu á neinum tímapunkti þótt hún hafi verið á sömu slóðum og hinar tvær flugvélarnar sem voru komnar of nálægt hvor annarri.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga