flugfréttir
Qatar Airways kaupir 5 prósenta hlut í China Southern
China Southern Airlines hefur yfirgefið flugbandalagið SkyTeam og þá hefur Qatar Airways hótað því að segja sig úr oneworld
Qatar Airways hefur keypt 5 prósenta hlut í kínverska flugfélaginu China Southern Airlines en kaupin eru hluti af stefnu Qatar Airways sem er að fjárfesta í stórum flugfélögum í heiminum í þeim tilgangi að efla leiðarkerfi sitt.
Með þessu verður Qatar Airways fjórði stærsti hluthafinn í flugfélaginu kínverska en þess má geta að Qatar Airways
á 10% hlut í Cathay Pacific og 20 prósenta hlut í IAG, móðurfélagi British Airways og Iberia.
Kaupin munu auka umsvif Qatar Airways í Kína en samkvæmt spám Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO) þá mun Kína verða stærri markaður en Bandaríkin innan fimm ára er kemur að
farþegaflugi.
„Það eru mikil tækifæri fyrir bæði flugfélögin til þess að vinna núna saman og byggja upp samstarf til langstíma“, segir
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.